Freitag, 4. Februar 2011

Royi Rogers

Ég fór á cowboy-mynd í gær,
spennan var gífurleg, ég varð ær,
af spennu og hrifningu’ allur salurinn þagði,
þegar aðal í myndinni kom inn og sagði:

„Ég er Royi Rogers, ég er sætur og glaður,
búinn að vera’ í þessum bransa í sautján ár.
Ég eltist við bófa og ræningja
og kem þeim í hendur á fógeta.“

Ég er Barði, ég er með bófaflokk,
ég brýst inn í banka og svoleiðis nokk,
rupla og ræni út um allar trissur,
roastbeef og remúlaði, folöld og hryssur.
Skýt þig í bakið er burtu ferðu!
- Ah! - Þarna sérðu!

Úúú!

Ég er indíáni, brúnn og glaður,
ég er líka bisness-maður.
Sker af þeim skallann, þurrka og herði
og sel þeim hann aftur á uppsprengdu verði.

Leikurinn gerist í litlum bæ,
þar sem lögum og reglum er kastað á glæ,
Þeir reynd'að fá Royi til að róa liðið,
ribbaldaforinginn stóð við hliðið:

„Hvaðan man ég eftir þessu fési,
þetta er þó ekki hann Eitur-Pési?“
-Jú, sá er maðurinn, mannstu’ eftir mér?
„Já hvort ég man! Hvað ertu’ að gera hér?“

-Ég er að plana alveg glænýtt plott,
ég póstvagninn ræni og þéna flott!
„Hvað ef ég reyni að stoppa það?“
-Mér þætti gaman að sjá það!
„Dí bómdí bómdí bómsteik!“

-Við erum þrjátíu’ - þú ert einn,
-þú verður drepinn ungi sveinn! (Bang! Bang! Bang!)
-Svona verður það, ha!
„Þú getur ekkert nema rifið kjaft!“

„Nú skalt þú og þý þitt út úr bænum flýja,
ella verðurðu gataður sem mjólkursía!
Þú veist að ég er fljótastur með framhleypuna.“
-En ég er miklu flinkari með harmonikkuna!

Nú kom hlé svo ég fékk mér smók,
saltað poppkorn og kalda kók.
Svo þegar ég kom aftur inn,
var Royi kominn heim á búgarðinn:

„Hér er ég kominn til að skipta um föt,
þessi eru skítug og allsstaðar göt.
Ég ætla’ að fara í sturtu og vera snöggur að ...
þetta var mjög snöggt bað!

(Bank, bank bank!) „Hver lemur svona fast?“
Stúlkan sem þú lofaðir að trúlofast.
„Þú hefur breyst þetta er engin mynd.“
Er ég eitthvað kindarleg?
„Nei eins og kind!“

Royi, finnurðu’ ekki nýju lyktina af mér?
„Þetta’ er ekki lyktin sem er alltaf af þér!“
Nei þessi nýja'er alveg fyrirtak.
„Hvað er hún kölluð?“ - Ammóníak!

„Ég játa það fyrir þér hér og nú,
ég kvenmann vill fá og hana nú.“
Hættu að tauta og trúlofastu mér.
„En ég á engan hring í nefið á þér!“

„Nú verð ég að finna hann Eitur-Pésa,
þýðir ekki að sitja heima og lesa.
Þú kemur með, leiðin er greið.“
Er ’etta langt? - „Ja svona dagleið.“

„Þá erum við loks á áfangastað,
Pési og þeir vita ekkert um það.
Hér er planið, það er ekki beisið,
ég læðist inn og þú umkringir pleisið.“

Hér er byssan! - „Ég þarf ekki byssu,
ég er búinn að segja þér, ég geri aldrei skyssu.“
Ég vona að þeir bindi ekki á þig hnút.
„Þú skalt bara telja þegar ég hendi þeim út!“

Eeeeeiiiinnnnn! - „Hættu’ að telja, þett'er ég!“

Höfundur texta: Þórhallur Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson
Höfundur lags: Þórhallur Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson

(Texti fenginn að láni frá http://textar.midja.is/ og lagaður aðeins til)