Posts mit dem Label þýðingar werden angezeigt. Alle Posts anzeigen
Posts mit dem Label þýðingar werden angezeigt. Alle Posts anzeigen

Dienstag, 1. April 2008

Samanber, sbr. þó

Nokkur atriði sem gott væri að halda til haga varðand þýðingar yfir á ensku.

Þýða má "samanber 5. mgr." sem "see paragraph 5" eða "cf. paragraph 5", nema inntak þess sem fram kemur í 5. mgr. sé látið ráða ferð, en þá má nota:
- as mentioned / defined / categorized / amended by / determined by paragraph 5.

Öðru máli gegnir um "samanber þó 5. mgr.", sem þýðist annað hvort þýðist sem "subject to" ef um skilyrði er að ræða eða "without prejudice to" / "notwithstanding".

---

"... sem um ræðir" er þýtt sem "concerned" þegar verið er að vísa til einhvers sem áður hefur verið nefnt.

Þegar hins vegar tilvísunarandlagið er nefnt strax á eftir, "sem um ræðir í X", er það þýtt sem "referred to in".

Öllu vandmeðfarnara er að þýða "líkt og / eins og um væri að ræða" á fallegan hátt yfir í ensku, og helst þarf að tengja hinu ensku þýðingu við það sem verið er að líkja e-u saman við:
"as if they were";
"like it was";
"as if he is".

Sonntag, 2. März 2008

Discretionary assessment

Þurfti aðeins að hugsa um hugtakið "discretionary assessment" og þýðingu þess. Venjulega þegar eitthvað er based on discretionary assessment þá er orðið "geðþótti" tekið fram. Geðþótti þykir mér full gildishlaðið stundum og þá má í staðinn nota "frjálst mat" þegar við á.


Eitt sem ég gleymi alltaf er hvernig greina skuli á milli orðanna coordination og harmonisation þegar textar með báðum þessum orðum eru þýddir.

coordination - samræming

harmonisation - samstilling

Dienstag, 11. Dezember 2007

Að standa undir sér

Hugtakið að standa undir sér virðist, þegar þetta er skrifað, hvergi finnast þýtt yfir á ensku eða önnur tungumál.

Carry it's own weight er ágætis þýðing yfir í ensku, enda þótt það sé í raun samsett úr "pull it's (own) weight"[1] og "carry weight"[2].
[1] to contribute one's rightful share of work to a project or job
[2] have influence to a specified degree; "Her opinion carries a lot of weight"


Sömuleiðis virðist fjarverandi úr þýðingum ýmislegt annað sem hlutir verða gjarnan að standa undir í daglegu máli, á borð við væntingar, rekstur o.fl. Að standa undir bloggi stóð m.a.s. einhversstaðar.

Reyndar er ísl.-ensk orðabók Eddu.is með orðsambandið að standa undir kostnaði, þar sem það er sagt merkja "foot the bill". Ekki alveg sami sjarmi yfir því.


Merking þess að standa undir einhverju, getur skv. orðabók Eddu.is haft 2 merkingar í þessu samhengi:
1 taka e-ð á sig, bera e-ð
standa undir kostnaði af e-u / greiða kostnaðinn af e-u
2 verðskulda e-ð
standa undir hrósi
standa undir væntingum / uppfylla væntingar
standa undir nafni / standa sig eða duga svo að sambjóði nafninu, fyrirætlunum eða væntingum



E.t.v. er einhverja leiðsögn að finna í íslendingabókarorðsamböndum sem þýdd hafa verið yfir á íslensku:
standa vel undir e-ð, to support well, back it up well (munu margir vel undir það standa); standa undir e-m, to be in one’s possession, keeping (féið stendr undir honum);


Ritmálaskrá HÍ gefur okkur nokkur skemmtileg dæmi:

"það er opt meiri eða minni tími, sem þeir eptir á eiga að standa undir lögreglustjórans sérlegri tilsjón."
"að hér á Íslandi væri einnig danskir þegnar, sem einnig ætti að standa undir lögunum."

Donnerstag, 6. Dezember 2007

in any case

Hann er lúmskur, munurinn á þessum tveimur setningum:

1. the term shall in any case include apples and oranges;
2. the term shall, in any case, include apples and oranges;

1. hugtakið felur í öllum tilvikum* í sér epli og appelsínur;
2. hugtakið felur, hvað sem öðru líður, í sér epli og appelsínur;

(tjah, eða að öllu jöfnu, þegar formlegheitin eru í lágmarki)

Merkingin á ensku er:
1. in any event;
2. besides

Og á únglíngamáli:
1. þa'e'sko alltaf skiluru! (totally allways dude!)
2. bara ... hvort-sem-er .. (like, anyway ..)Mismunandi íslenska þýðingu hugtaksins má sjá m.a. með því að googla "in any case" og "tvísköttunarsamningar" á brunnur.stjr.is.

... in any case is an idiom and a cliché, but it nonetheless is a handy substitute for other idiomatic clichés such as in any event or after all or nonetheless.

where's the any case?

(mynd af einbeittri konu af designcanteen.com)