Freitag, 4. Februar 2011

Royi Rogers

Ég fór á cowboy-mynd í gær,
spennan var gífurleg, ég varð ær,
af spennu og hrifningu’ allur salurinn þagði,
þegar aðal í myndinni kom inn og sagði:

„Ég er Royi Rogers, ég er sætur og glaður,
búinn að vera’ í þessum bransa í sautján ár.
Ég eltist við bófa og ræningja
og kem þeim í hendur á fógeta.“

Ég er Barði, ég er með bófaflokk,
ég brýst inn í banka og svoleiðis nokk,
rupla og ræni út um allar trissur,
roastbeef og remúlaði, folöld og hryssur.
Skýt þig í bakið er burtu ferðu!
- Ah! - Þarna sérðu!

Úúú!

Ég er indíáni, brúnn og glaður,
ég er líka bisness-maður.
Sker af þeim skallann, þurrka og herði
og sel þeim hann aftur á uppsprengdu verði.

Leikurinn gerist í litlum bæ,
þar sem lögum og reglum er kastað á glæ,
Þeir reynd'að fá Royi til að róa liðið,
ribbaldaforinginn stóð við hliðið:

„Hvaðan man ég eftir þessu fési,
þetta er þó ekki hann Eitur-Pési?“
-Jú, sá er maðurinn, mannstu’ eftir mér?
„Já hvort ég man! Hvað ertu’ að gera hér?“

-Ég er að plana alveg glænýtt plott,
ég póstvagninn ræni og þéna flott!
„Hvað ef ég reyni að stoppa það?“
-Mér þætti gaman að sjá það!
„Dí bómdí bómdí bómsteik!“

-Við erum þrjátíu’ - þú ert einn,
-þú verður drepinn ungi sveinn! (Bang! Bang! Bang!)
-Svona verður það, ha!
„Þú getur ekkert nema rifið kjaft!“

„Nú skalt þú og þý þitt út úr bænum flýja,
ella verðurðu gataður sem mjólkursía!
Þú veist að ég er fljótastur með framhleypuna.“
-En ég er miklu flinkari með harmonikkuna!

Nú kom hlé svo ég fékk mér smók,
saltað poppkorn og kalda kók.
Svo þegar ég kom aftur inn,
var Royi kominn heim á búgarðinn:

„Hér er ég kominn til að skipta um föt,
þessi eru skítug og allsstaðar göt.
Ég ætla’ að fara í sturtu og vera snöggur að ...
þetta var mjög snöggt bað!

(Bank, bank bank!) „Hver lemur svona fast?“
Stúlkan sem þú lofaðir að trúlofast.
„Þú hefur breyst þetta er engin mynd.“
Er ég eitthvað kindarleg?
„Nei eins og kind!“

Royi, finnurðu’ ekki nýju lyktina af mér?
„Þetta’ er ekki lyktin sem er alltaf af þér!“
Nei þessi nýja'er alveg fyrirtak.
„Hvað er hún kölluð?“ - Ammóníak!

„Ég játa það fyrir þér hér og nú,
ég kvenmann vill fá og hana nú.“
Hættu að tauta og trúlofastu mér.
„En ég á engan hring í nefið á þér!“

„Nú verð ég að finna hann Eitur-Pésa,
þýðir ekki að sitja heima og lesa.
Þú kemur með, leiðin er greið.“
Er ’etta langt? - „Ja svona dagleið.“

„Þá erum við loks á áfangastað,
Pési og þeir vita ekkert um það.
Hér er planið, það er ekki beisið,
ég læðist inn og þú umkringir pleisið.“

Hér er byssan! - „Ég þarf ekki byssu,
ég er búinn að segja þér, ég geri aldrei skyssu.“
Ég vona að þeir bindi ekki á þig hnút.
„Þú skalt bara telja þegar ég hendi þeim út!“

Eeeeeiiiinnnnn! - „Hættu’ að telja, þett'er ég!“

Höfundur texta: Þórhallur Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson
Höfundur lags: Þórhallur Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson

(Texti fenginn að láni frá http://textar.midja.is/ og lagaður aðeins til)

5 Kommentare:

Unknown hat gesagt…

Sækja um fljótlegt og þægilegt lán til að borga reikninga og til að hefja nýjan fjármögnun verkefnum þínum á ódýrustu vexti 2%. Hafðu samband við okkur í dag með: elijahloanfirm@outlook.com með lánsfjárhæð sem þarf vegna þess að lágmarkslánið okkar er 1,000.00 að einhverju vali lánsfjárhæð.

Séverine Christiana PICARO hat gesagt…

📧: Séverine Christiana PICARO HOEVEL

E-mail: christianapicaro@gmail.com

Titre: VOTRE CRÉDIT : christianapicaro@gmail.com
Des postes: VOTRE CRÉDITNous offrons un programme de prêt qui répond à vos besoins financiers. Concernant la liquidité à court terme, nous nous efforçons de mettre les fonds à disposition dans les 24 heures suivant la demande. Pour plus d'informations, contactez-nous par email : (christianapicaro@gmail.com)

ROBERT hat gesagt…

Þarftu neyðarlán til að greiða niður skuldir þínar eða hlutafjárlán til að bæta viðskipti þín? Hefur þér verið hafnað af bönkum og öðrum fjármálastofnunum? Vantar þig samþjöppun lána eða veð? Ekki leita lengra, því við erum hér til að setja öll fjárhagsvandamál þín á bak við okkur. Hafðu samband með tölvupósti: {larrybright424@gmail.com Við bjóðum upp á lán til hagsmunaaðila á sanngjörnum vöxtum, 2%. Bilið er frá 5.000.00 evrur til 100.000.000.00 evrur

Loan Offer. hat gesagt…

Vantar þig fjárhagsaðstoð af einhverju tagi? Persónulegir peningar? Viðskiptafé? Veðfé? Fjármunir fyrirtækisins? Landbúnaðar- og verkefnastyrkir? Við gefum út peninga á 2% vöxtum! Hafðu samband: (richardcosmos5@gmail.com)

Brýnt peningatilboð.

West Lake hat gesagt…

Ertu að leita að lögmætu láni?
Hefur þér verið hafnað af bönkum þínum?
Þú þarft peninga af einni eða annarri ástæðu.
Þú ert einlægur og heiðarlegur
Þarftu lán til að greiða niður skuldir, reikninga eða til að framkvæma verkefni?
Þú hefur alltaf tækifæri.
Það sem meira er, við bjóðum lán hratt og áreiðanlega með 2% ársvöxtum. Við erum áreiðanleg
Ef þú hefur áhuga skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur beint.
Netfang: Loanwestlake@gmail.com
símskeyti___https://t.me/loan59